Hawaii| Ævintýri á Hawaii haustið 2022! Hawaii Eco Retreat

Journey Dates: October 27 - November 9, 2022 Trip Availability: CLOSED
Tour Sponsor: Ásdis Guðmundsdóttir

For English, please see the Itinerary file below (English starts on p. 3).

Ævintýraferð til Hawaii

Altruvistas kynnir ævintýraferð um Hawaii!

Tekið verður á móti hópnum í Honolulu að hætti Hawaii búa, en gestrisni þeirra er margrómuð. Við skoðum Pearl Harbor, sem varð fyrir sprengingum Japana í seinni heimsstyrjöldinni, skoðum Iolani höllina sem var heimkynni kóngafólksins sem voru frumbyggjar eyjanna. Við heimsækjum Ka’ala menningarsvæðið og fáum snert af Lo’i upplifun, en loi er hefðbundin leið til að rækta kalo sem er grænmeti sem mikið er nýtt á eyjunum. Við fáum einnig frjálsan dag þar sem hægt verður að fara í golf, fara á ströndina og leigja kajaka eða fara á Kualoa Ranch þar sem margar þekktar kvikmyndir hafa verið teknar upp, svo sem Jurassic park og Jumanji. Farið verður á námskeið í hula dansi og gerð Lei blómsveiga, en hula dansinn er stór hluti af menningu Hawaii.

Á degi 7 verður síðan flogið til Hawaii eyjunnar eða Big Island eins og hún er kölluð. Flogið er til borgarinnar Hilo og gist þar í 2 nætur. Hawaii er eldfjallaeyja eins og Ísland og við heimsækjum eldfjallaþjóðgarð þeirra. Þar er hægt að ganga mislangar göngur, allt eftir getu og vilja.

Á degi 9 tékkum við okkur út af hótelinu og ökum á vesturhluta eyjarinnar, heimsækjum bændamarkað og komum við á býflugnabúi. Seinnipartinn er svo komið á áfangastaðinn Kona. Daginn eftir fer hópurinn í 3 tíma einkaferð í bát til að snorkla og skoða lífríki hafsins. Síðustu tveir dagarnir eru helgaðir gönguferðum, við förum til Pololu Valley þar sem má finna fallega svarta strönd og síðan heimsækjum við Papakolea eða hina einstöku Green Sands strönd en sandurinn er gerður úr fínum sandi grænna smaragða.

Á degi 14 er síðan flogið aftur til Honolulu þar sem fólk ýmist ferðast aftur heim eða ef vill dvelur nokkra daga í viðbót og nýtur lífsins.

Fararstjóri/leiðsögumaður: Malia Everette, eigandi AltruVistas

Hagnýtar upplýsingar

Dagsetningar: 27.10.2022 – 9.11.2022

Verð: 3.800 USD

Innifalið

13 nætur á hóteli með morgunmat

Allar ferðir þegar komið er til Hawaii (akstur til og frá áfangastaða ásamt flugi til og frá Hilo (Big Island).

Aðgangseyrir í söfn og aðra staði nema þá daga þegar val er um hvað gert er.

Hádegisverðir alla daga nema dag nr. 5, 6, 12 og 13.

Kvöldverðir dag 1 og 13 (welcome dinner og farewell dinner) en kveðjumáltíðin er hlaðborð og skemmtun að hætti Hawaii búa.

Ekki innifalið

Flug og gisting til og frá Hawaii (Gista þarf eina nótt á leið út og heim)

Tour Price
$3800

Trip Itinerary
View Trip Itinerary Here

Your Journey Leader
Ásdis Guðmundsdóttir

Browse All Upcoming Journeys
Custom Cuba Trips